Vægi ferskra afurða eykst
14. febrúar, 2020
Útflutningsverðmæti ferskra sjávarafurða hefur aukist verulega á þessari öld. Nam verðmæti þeirra rúmlega 27% af útflutningsverðmæti sjávarafurða á árinu 2019 samanborið við um 11% um aldamótin. Gjörbreyttar aðstæður á markaði skýra þetta, en mun meiri spurn er nú eftir ferskum afurðum en áður. Jafnframt hefur sú tæknibylting sem orðið hefur á tímabilinu gert fyrirtækjum kleift að mæta þessari auknu eftirspurn. Þar skiptir vitaskuld miklu máli svigrúm fyrirtækjanna til fjárfestingar, sem þau hafa nýtt sér til aukinnar verðmætasköpunar undanfarin ár eins og þessi þróun sýnir.
Þróunina má sjá á myndinni hér fyrir neðan, en hún sem sýnir útflutningsverðmæti botn- og flatfiskafurða á þessari öld. Verðmæti ferskra botn- og flatfiskafurða var rúmlega 71 milljarður króna í fyrra, og hefur það aldrei áður verið hærra hvort sem mælt er í krónum eða í erlendri mynt. Jafnframt má sjá að ferskar afurðir vega þyngst í botn- og flatfiski, en þær voru komnar upp í 37% af útflutningsverðmæti afurðanna í fyrra. Það hlutfall hefur aldrei farið svo hátt, en um aldamótin var vægi þeirra 16%.
Nánar um þetta og fleira má sjá á Radarnum, þar sem tölur um útflutning á botn- og flatfiskafurðum hafa verið uppfærðar.