Sjávarafurðir: Verulegur samdráttur í maí

5. júní, 2020

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 23,7 milljörðum króna í maí samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar sem birtar voru í morgun. Þetta er um 16% samdráttur í krónum talið miðað við maí í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri í erlendri mynt, eða um 26%, enda var gengi krónunnar um 12% veikara nú í maí en í sama mánuði í fyrra. Þetta er í takt við það sem búast mátti við og fjallað var um í grein á Radarnum fyrr í vikunni. Þó ber að hafa í huga að í maí í fyrra var útflutningur á uppsjávarafurðum óvenjumikill miðað við árstíma, aðallega á makríl. Makríll er að mestu veiddur síðla sumars og fram á haust og kann því að vera að töf hafi verið á afhendingu á gögnum og hann færður til bókar með útflutningi í maí. Því gæti samdráttur í útflutningi í maí á milli ára verið minni fyrir vikið, þó er erfitt að staðfesta slíkt.  

Birtingu vikutalna hætt
Útflutningsverðmæti sjávarafurða er komið í 104,7 milljarða króna á fyrstu 5 mánuðum ársins samanborið við 112,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. Það er um 7% samdráttur í krónum talið en um 14% í erlendri mynt. Þetta rímar ágætlega við vikulegu tölurnar sem Hagstofan hefur birt um vöruskipti að undanförnu, en tölur fyrir viku 22 litu einmitt dagsins ljós í gær. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá útflutningsverðmæti sjávarafurða á föstu gengi á fyrstu 22 vikum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Þar blasir við að COVID-19 hefur valdið erfiðleikum í greininni. Þetta framtak Hagstofunnar, að birta upplýsingar vikulega, hefur reynst afar gagnlegt, sér í lagi á þessum óvissutímum sem nú eru uppi. Þó kom fram í fréttatilkynningu Hagstofunnar í gær að birtingu vikutalna hefði verið hætt.

 

Deila frétt á facebook