Loðnubrestur setur mark á viðskiptalönd

11. febrúar, 2020

Nokkur breyting varð á hlutdeild stærstu viðskiptalanda Íslendinga með sjávarafurðir á árinu 2019 frá fyrra ári. Það má meðal annars rekja til loðnubrestsins. Var því talsverður samdráttur í útflutningi til þeirra landa sem flytja inn mikið af loðnuafurðum, en þar eru Noregur og Japan fremst í flokki. Afurðirnar sem fluttar eru út til þessara tveggja landa eru afar ólíkar. Noregur er stærsta viðskiptaland Íslendinga með fiskimjöl og lýsi, enda ein öflugustu fiskeldisþjóð í heimi. Dróst útflutningur á sjávarafurðum til Noregs saman um rúma 4,9 milljarða króna á árinu 2019 frá 2018, eða sem nemur rúmum 23% að nafnvirði. Þetta skýrist, að nánast öllu leyti, af samdrætti í útflutningi á loðnu til Noregs. Fór hlutdeild Noregs í útflutningsverðmæti sjávarafurða í heild úr 9,0% í 6,4% á milli áranna 2018 og 2019. Noregur var fimmta stærsta viðskiptaland Íslendinga á þann kvarða en var í fjórða sæti á árinu 2018.

Útflutningsverðmæti sjávarafurða til Japans dróst saman um rúma 4,6 milljarða króna á milli áranna 2018 og 2019. Jafngildir það samdrætti upp á tæp 53% að nafnvirði. Fór hlutdeild Japans í útflutningsverðmæti sjávarafurða úr 3,7% í 1,6% á milli ára. Japan er stærsta viðskiptaland Íslendinga með frystar loðnuafurðir. Voru Japanir 16. stærsta viðskiptaþjóð Íslendinga með sjávarafurðir á árinu 2019 en árið 2018 voru þeir í tíunda sæti.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá 10 stærstu viðskiptalönd Íslendinga með sjávarafurðir á árinu 2019, miðað við verðmæti, og þróunina frá árinu 2010. Nánari umfjöllun um viðskiptalönd Íslendinga með sjávarafurðir má finna á Radarnum, en þar hafa tölur og umfjöllun nýlega verið uppfærð.

 

Deila frétt á facebook