Eldisafurðir: Útflutningsverðmæti tæpir 2,3 milljarðar í nóvember

11. janúar, 2021

Útflutningsverðmæti eldisafurða nam tæplega 2,3 milljörðum króna í nóvember samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti um vöruskipti í morgun. Það er nokkuð umfram væntingar og fjallað var um á Radarnum í byrjun desember. Engu að síður er um talsverðan samdrátt að ræða miðað við nóvember 2019, eða um rúm 22% í krónum talið en um 33% á föstu gengi. Hér ber þó að halda til haga að nóvember 2019 var þriðji stærsti mánuðurinn frá upphafi í útflutningi á eldisafurðum. Eðlilega geta miklar sveiflur verið á milli mánaða og er samdrátturinn í nóvember síður en svo vísbending um að bakslag hafi orðið í þeirri jákvæðu þróun sem verið hefur á framleiðslu og útflutningi á eldisafurðum undanfarin misseri.

Framleiðslan aldrei verið meiri

Útflutningsverðmæti eldisafurða er komið í rúma 25,3 milljarða króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2020. Það er um 11% aukning í krónum talið miðað við sama tímabil árið 2019. Gengi krónunnar var að jafnaði 10% veikara á fyrstu 11 mánuðum ársins í fyrra en á sama tímabili árið 2019 og stendur útflutningsverðmæti eldisafurða þar með nánast í stað á milli ára á föstu gengi.

Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan þá stendur útflutningsverðmæti eldislax svo til í stað á milli ára. Inn í þeim tölum er  útflutningsverðmæti flokks sem heitir „lifandi eldislax“, þar með talin seiði. Ætla má að það séu að stærstum hluta frjóvguð hrogn sem eru verðmæt hátækniframleiðsla. Útflutningsverðmæti þeirra nam 1,8 milljörðum króna á tímabilinu og dróst saman um 30% á föstu gengi frá sama tímabili árið 2019. Útflutningsverðmæti hefðbundinnar framleiðslu á eldislaxi nam því 17,3 milljörðum króna á fyrstu 11 mánuðum ársins í fyrra, sem er um 5% aukning frá sama tímabili árið 2019. Útflutningsverðmæti silungs, sem er að langstærstum hluta bleikja, nam rúmlega 5,2 milljörðum króna og jókst um rúm 4% á milli ára á föstu gengi.  Útflutningsverðmæti annarra eldisafurða nam 1,0 milljarði króna og dróst saman um 22% á milli ára.

Það að útflutningsverðmæti eldisafurða sé nánast óbreytt á fyrstu 11 mánuðum ársins 2020 verður að teljast mjög gott miðað við það árferði sem ríkt hefur í heimsbúskapnum vegna COVID-19. Það má einkum rekja til aukinnar framleiðslu á eldisafurðum en hún jókst um 4% að magni til á milli ára á greindu tímabili og hefur aldrei verið meiri. Á móti vegur tæplega 4% lækkun á afurðaverði í erlendri mynt, sem er bein afleiðing af COVID-19.

 

Deila frétt á facebook